Monday, April 2, 2007

Ég var nú bara að suða hafragraut.

Og ekki bara hafragraut heldur er hann með banönum og kanil. Hann er nett góður og ótrúlega einfaldur. En nóg um hafragrautinn, lítið markvert hefur gerst síðan að seinasta færsla var rituð.
Dóri er byrjaður í frönskuskóla og er í líkamsræktarstöð hér rétt hjá þar sem allir tala bara frön sku og hann kinkar bara kolli og gerir allar æfingar vitlaust, og skýrir það líklegast verkinn sem að skýst upp frá hnéskel með fram bakinu og endar í öxlunum. En allavega.. í gær fórum við út að borða á kínastaðinn sem við rituðum um hérna seinast það vorum við amina og 4 aðrir krakkar úr skólanum, öll frá Asíu. Maturinn var góður og þjónustan góð og í desert fengu allir að halda á kínabarni konunnar sem rekur staðinn, því allt annað starfsfólk var farið og hún gat hvergi sett frá sér kínabarnið á meðan hún gerði upp reikninginn. Ef þetta er ekki eins og klippt úr simpsons þætti þá veit ég ekki hvað. Í gær fórum við líka á línuskauta en tölum ekki meira um það.

Matarbúðir í Sviss eru skrítnar á suman hátt, en betri á flestan hátt. Engin búð í Sviss virðist selja matarlit né sósulit, flestar selja kippu af bjór á um 500 krónur og um daginn voru 24stk á tilboði á um 1100krónur sem að samsvarar einum sixpakkara á Íslandi. Hérna er líka hægt að kaupa 24 1/2 líters kók á 1100 krónur, ekki slæmt það fyrir þá sem drekkar kók .. :/ . En núðlupakki eins og kostar 8 krónur í bónus kostar minnst 55krónur hér sem verður að teljast hneisa.

En hver man ekki eftir fyrsta blogginu þar sem sögð var reynslusaga af hárgreiðslunni minni. Jæja nú verð ég var að éta orð mín því ég var á undan goðinu David Beckham með hárgreiðsluna, David vinur minn virðist þó hafa tekið "hnoðrann" á næsta level með því að hafa toppinn eilítið síðari og greiða hann snyrtilega á ská. Annars er það að frétta að hnoðranum á mér að hann vex mjög ójafnt og er farinn að minna á einskonar svepp í laginu. Mynd af Beckham með hnoðrann má sjá hérna.

Annars er lítið að frétta, það var farið út á föstudagskvöldið bara léttur vodka redbull stemmari og svo gisti Amína í gærnótt og hefur myndast hefð fyrir SunnudagsvídeókvöldiþarsemAminagistir. Það var horft á Dream Girls ég (dóri) sofnaði eftir svona 10min og veit þessvegna ekki mikið um þessa mynd en hún hefur fengið væna dóma.
Páskarnir eru enn óplaniðir að mestu og ég stofnaði myspace síðu sem er http://www.myspace.com/chefdori þar sem lesendur geta átt góðar stundir.

Það verður ekki bloggað aftur fyrr en eftir minnst 10 skemmtileg comment,
ég þakka áheyrnina,
verið þið sæl.

5 comments:

Anonymous said...

Jamm.. mátt alveg kaupa fyrir mig 2 kassa af þessum ódýra svissneska ostabjór og senda mér með dúfu. Ef það verður pláss í pakkanum máttu alveg láta fylgja með afganginn af hafragrautnum í poka.

Anonymous said...

Alltaf gaman að heyra frá ykkur. Þið megið senda mér kassa af bjór, og ég skal senda ykkur núðlubakka (úr bónus eins og þið viljið hafa þá).

Anonymous said...

Þetta var nú sérdeilis skemmtileg lesning svona mitt í lærdómnum.. (ehh, ég er samt ekki að læra, ég bara á að vera að læra).. vonandi fæ ég einhverntíman að smakka þennan hafragraut, en á meðan læt ég mér nægja epla hafragrautinn í pökkunum úr bónus (þar sem núðlurnar eru ódýrar).. hilsen!

Anonymous said...

Ég er meira fyrir vodkann. Fór á skíði í gær á Sigló það var örugglega álíka fyndið og að sjá Dóra á línuskautum. I feel for you man. Og ekki láta frakkatalandi fólkið á líkamsræktastöðinni koma við þig á viðkvæmum stöðum.

Anonymous said...

Ég verð að leggja mitt af mörkum til að þú bloggir aftur kæri frændi... Annars á ég línuskauta einhversstaðar niðri í geymslu og verð að viðurkenna að frasinn "belja á svelli" fékk nýja merkingu í þessi tvö skipti sem ég hef látið sjá mig á þeim.

Hafið það gott hnoðrar...