Thursday, March 22, 2007

Enchanté mademoiselle



Nú sit ég yfir tortillu fylltri með kókoskjúlla með mangó sem eru afgangar kvöldmatsins í fyrrakvöld sem ég reif svona skemmtilega niður í tortilluna. Ég nú að segja að kókosinn nýtur sín betur eftir að hafa fengið að hugsa sinn gang í kælinum í þennan tíma. Minnir mig dálítið á Mexíkó þegar að ég og Ágúst náðum okkur í kókoshnetu upp í tré niðrá strönd þar, en það vildi ekki betur til að kókoshnetan strauk hausinn á ágústi þegar ég dúndraði henni niður með þeim afleiðingum að hann sleppti takinu á mér í hláturskasti og ég hékk í pálmatrénu og seig niður og var allur vel rispaður. Það voru tímarnir. Á myndinni á sjá þegar að Ágúst sleppir á mer takinu, kókoshnetan er í jörðinni.

En nú yfir í allt aðrar aríur og tökum við nú þráðinn upp það sem frá var horfið. Á föstudaginn seinasta leigðum við okkur bíl vegna fyrihugaðrar ferðar í fyrirheitna landið (IKEA) daginn eftir. Á föstudagskvöldið keyrðum við með vinum okkar tveim, Aminu frá svíþjóð og Kristjáni frá íslandi í leit af vetingastað. Við fórum útúr bænum og fundum lítið þorð sem við stönsuðum í og ætluðum að borða. Þegar við fórum inná veitingastaðinn tók við okkur þessi líka ljúflings brunalykt en við létum það ekki á okkur fá, en snérum við á punktinum þegar að við okkur tók geltandi hundur. Þeir strompreykja ekki bara heldur geyma þeir hundana sína frammi. Þá ókum við til nágrannabæjarins Cheux-de-fonds og borðuðum þar og áttum ágætis kvöld.

Á laugardaginn var svo haldið í IKEA með Aminu sem fararstjóra enda sænsk. Í IKEA hittum við íslendinga sem eru að vinna í Sviss og karlinn var frá hornafirði og þekkti Bergþóru og alla hennar fjölskyldu, lítill heimur maður, góður draumur maður. Í IKEA keyptum við okkur sófaborð og sófa og einhverja kolla og sænskar kjötbollur að borða. Svo var haldið frá Aubonne, bænum sem IKEA er í til Genf þar sem að Kristján var að hitta Helgu, Leslie og Eddie vini sína úr skólanum sem eru að klára vinnustaðanámið í sambandi við skólann þar. Við hittum þau og spjölluðum og virtust vera rosalega fín öllsömul, þá var haldið heim á leið um 7 leitið og farið á Kínverskan veitingastað í Neuchatel sem var eins og klipptur úr simpson þætti. Þjónustufólkið var með ungabarn á arminum meðan það þjónaði og henti því síðan bara bakvið þangað til greyið fór að gráta aftur. Magnað það og góður matur. Svo var ákveðið að fara aðeins út á lífið og kom þá í ljós að það var St. Patricks Day og þá var glatt á hjalla og á pubnum sem við vorum á voru írar að spila á gítar og syngja svona írsk þjóðlög. Ansi gaman að því.

Daginn eftir fórum við tvö svo bara í bíltúr um sveitavegina hérna og enduðum í Bern sem er í þýska hlutanum þar sem töluð er svokölluð schweize-deutsch sem er þó skiljanlegri en blessuð franskan. í ferðinni sáum við svissneskar beljur sem eru forvitin en heimsk dýr. Svo var bílnum skilað með tárum um kvöldið og Amina gisti og horfði á video með okkur.

Jæja þá er þessi langloka á enda. Vikudagarnir hafa liðið frekar fljótt og gengið venjulega fyrir sig. Erum að pæla hvað við eigum að gera um páskahelgina, tökum líklegast lest eitthvað, seinast var það milano þar sem við sáum Inter- AC Milan, það var góð ferð og erum jafnvel að pæla að fara til München þessa páskana, hvur veit.

5 comments:

Anonymous said...

I love you man, I love you man I really do!!! Hafið það gott í Svisswhateverlandi and come back sometime soon, þegar þið eruð búin að gera allt sem þið ætlið að gera þarna. Bæ the vei Dóri, vantar þér ekki eitthvern til að skola græmetið fyrir þig í ágúst. Mjög fá fyrirtæki sem eru tilbúinn að ráða viðskiptafræðinema í einn mánuð. Helvítis yndislegi og allt í bland sumarskóli hér á Bifröstinni.

Anonymous said...

Æj mikið var nú gaman að sjá þessa mynd hjá ykkur. Finnur og Einar fóru einmitt líka í svona kókoshnetu leiðangur, eyddu svo restinni af deginum í að reyna að opna helvítis hnetuna og drekka þessa nokkru dropa sem í henni voru. Good times, good times.
Kv. Finnur Smári og Steinunn

Anonymous said...

Svona þegar að ég skoða myndina betur þá held ég að Ágúst hafi verið að skoða "kókoshneturnar" á konunni þarna í bakgrunni á myndinni og misst þannig takið á mér ...

Anonymous said...

HAHAHHAHAHHAHHAHAH kókoshneturnar á konunni... HAHAHAHHAHAHHAHAHAHAH.
þakkaðu bara fyrir að hann missti ekki takið af því hann var að horfa uppundir stuttbuxurnar... úps gekk ég of langt?? :S

Anonymous said...

ég verð nú bara að þakka fyrir IKEA. Það virðist alveg sama hvert ísl. flytja, alltaf er hægt að innrétta heimilið með IKEA.