Sunday, April 22, 2007

25° hiti... aftur

Jæja góðir lesendur, í dag var um 25° hiti... aftur örugglega tíunda daginn í röð, hvenær ætlar þetta að hætta eiginlega ? Við skelltum okkur niður að vatni og hittum nokkra skólafélaga hennar Bergþóru, í þeim tilgangi að lesa og læra... mestlítið gert af því er ég hræddur um, en ísinn var engu að síður góður... og það sem honum fylgdi. Hittum líka á leiðinni fyrir hina tvo nemendurna úr frönskubekknum hjá Dóra sem voru furðu lostin yfir því að við ættum vini =

Við - We are just going to meet some friends..
Þau - Wow! You have friends here ??

Já spurning að maður bjóði ungverska parinu í mat einhvern daginn, þau virðast einmanna.

Lítið hefur gerst síðan síðasta færsla var rituð, við fórum jú til Zürich í þeim tilgangi a kjósa til alþingis. Þegar í þetta fína hús á aðalgötunni var komið þar sem skjaldarmerki Íslands fyllti mann þjóðarstoltinu tók á móti okkur kona sem að píndi út úr sér einhverjum versta enska hreim sem ég hef á minni ævi þurft að pína eyrun með. Hún tjáði okkur að við þurftum að panta tíma, sjálfir íslendingarnir til að fá að kjósa ..sem væri ekki hægt fyrr en í næstu viku. Ferðin var slöpp í alla staði og til að gera illt verra þá týndi annar aðilinn í sambandinu ýmislegu smálegu til að setja rjómann ofaná marengstertuna.

Í öðrum fréttum að það að segja að heimsóknir eru velkomnar hingað til Sviss... og ber þá að minna á að verð á bjórkippu er einungis 130krónur í búðum Co-op og svo er líka .... já nei bjórinn er líklegast eina catchið.

Meira var það ekki í bili í bili, veriði sæl.

6 comments:

Anonymous said...

kippan á 130 kr.. ég kem!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Anonymous said...

jiiiiii´, ég þarf augljóslega að fara að undirbúa ferðalag til switzerlands.....

Anonymous said...

Vill líka benda á það að kippan er ódýrari hjá mér... Hér er um 32 stiga hiti, strönd og svo er ég með 4 sundlaugar í bakgarðinum.... ;)
Þannig að mér finnst að þið ættuð að koma í heimsókn til mín...:D
kv. frá Flórída..
SHA

Anonymous said...

Takk kærlega fyrir gestrisnina síðustu vikuna Begga og Dóri, eða bíddu, komst ég einhvern tíman alla leið til ykkar... nei ég held að ég hafi bara verið í Co-op allan tíman að þamba bjór.

nú liggur leið mín til hennar Siggu Helgu (eða í búðina þar sem bjórinn er ódýrari)

kv, úr flugvélinni :)

Anonymous said...

Hey ég heimta nákvæma lýsingu á San Siro stemmaranum !!!

Dóri og Bergþóra said...

Ef þú heimtar.....