Málið með Spegilinn er að hann er á vitlausum tíma, ef að maður hlustar á rás2 í svona 2 klukkutíma undan Speglinum þá heyrir maður Fréttir, Síðdegisútvarpið sem að fjallar um fréttirnar og svo aftur fréttir og það ítarlegar með veðri og íþróttum og svo kemur Spegillinn og fjallar um þetta allt aftur, nema íþróttirnar og enginn nennir að hlusta, eða hvað ?
Að mínu mati er Sviss næst fallegast land í heimi núna. Ég skellti mér í göngutúr sem að varð í lengri kantinum, svo löngum kanti að lappirnar á mér bólgnuðu upp og ég lít út eins og ég sé bara með læri alveg niður að ökklum og þá tekur ekkert skárra við. Ætla mér að skella nokkrum ljósmyndum af ferð minni um nágrenni Neuchâtel hér fyrir neðan, veðrið var gott 25° hiti og eitt til tvö ský á lofti. Látum myndirnar tala sínu máli.
Ef vel er að gáð má sjá eðlu þarna, fyrir neðan fífilinn

Engin eðla á þessari, en líklega býr Heidi þarna með afa sínum

Húsið sem Begga fær í útskriftargjöf

Mynd yfir Neuchâtel og af vatninu og fjöllunum

Svona sirka 2km fyrir utan borgina okkar, svakafín alveg, hef ákveðið að kalla tréð sem neitar að blómstra nornatréð.

Flestir myndu þá halda að þetta væru þá nornatrésungar, en það er nú aldeilis ekki því á þessum sprekum vaxa vínberin sem að þeir nota í Neuchâtel Pinot Noir vínin, jafnframt var þetta fróðleiksmoli dagsins börnin góð.

Þessi skvísa tók góða pósu fyrir mig

Sett lokið á krúsina með mynd af einni skemmtilegustu fuglahræðu sem að ég hef séð.

Takk fyrir og vonandi nutuð þið myndanna.
7 comments:
flott eðla!!
ég sé hana sko, og nei ég er ekki að djóka.
góð pósa hjá skvísunni.. mmm mmm mmm mmm..
hei dóri.. manstu þegar þú fórst á tónleikana með spice girls út í tyrklandi?.. ætli þær séu að spila á rock am ring?
hei biggi, manstu þegar þú varst hálfviti ? Ég var 12 ára, saklaus, ungur og vissi enn ekki hvort ég yrði strákur eða stelpa (veit það ekki enn) En svarið er nei ég man ekki eftir neinum spice firls tónleikum útí Tyrklandi.
OHH ég sé ekki eðluna.. geturu sett sovna rauðan hring utan um hana?
Fyrir neðan fífilinn en fyrir ofan skuggann á honum, stækkaðu myndina og herlegheitin koma í ljós.
Þið fáið stór prik fyrir mynda show-ið :)flottar myndir:)
Bið að heilsa :)
Post a Comment