Sunday, June 10, 2007

Gústi og Biggi í Neuchatel - Aftur á vit ævintýranna - Partur 3

Jæja krakkar mínir, þá heldur frásögnin áfram þar sem frá var haldið en fyrst þetta. Nú eru bara 13 dagar í að ég, dóri haldi heim á leið. Já tíminn flýgur þegar þú ert í fríi og í næstum hverri viku tekuru þér frí frá fríinu og skellir þér eitthvað. En lífið er ekki bara frí frá fríinu og þarf maður víst að fara að vinna og valdi ég að vinna á litlu laxveiðihóteli nálægt Hvolvsvelli , 35-40manns í hádegi og á kvöldi. Svona skemmtilega nálægt bænum og svo er hægt að bruna heim ef svo ber undir. Bergþóra klárar síðann skólaönnina og kemur svo heim um verslunarmannahelgina er marka má seinustu fregnir. En núna af allt öðru, og held ég áfram sögn minni af frægðarför Bigga og Gústa til Svisssss.

Á barnum yfir bjórnum þá ræddum við um væntanlega ferð okkar á Rock Am Ring festivalið sem haldið er í Nürburg í Þýskalandi, nánar tiltekið á Formula 1 brautinni þar. Ég hafði pantað það sem ég hélt að væri hótelherbergi með aukarúmi í bæ rétt hjá Nürburgring og svo ætluðum við að taka lest morguninn eftir : Neuchatel-Basel Basel-Mainz. Og bílaleigubíl frá Mainz-Nürburg. Eftir þessar djúpu samræður og grátandi trúna héldum við heim í koju og sváfum rótt þangað til að klukkan klingdi. Klárað var að pakka og allir settu á sig andlitið og drulluðu sér af stað niður á strætóstopp. Strætó upp á lestarstöð keyptir miðar, sammari og íste á línuna nema Gústi... einhverneginn fann hann alltaf nýja tegund af Powerade í töskunni sinni, misgóðar eins og þær voru margar.

Lestarförin til Mainz gekk vel. Við leituðum strax af bílaleigunni sem samkvæmt internetinu átti bara að vera á lestarstöðinni, en neinei hún var bara ekkert þar og enginn vissi hvar hún var en okkur var þó margoft bent á allt aðra bílaleigu. Allavega eftir að hafa rölt útum alla lestarstöð Mainz og nágrenni með farangurinn fórum við inná internetkaffi. Fengum að fara á internetið þar en konan sagði, passaðu þig efst á stiganum, það ældi einhver þar... jájá takk fyrir það. Þau voru ekkert á því að þrífa neitt upp þessir 4 starfsmenn þarna og ælan var á sínum stað þegar við fórum, geðslegt.

Fundum taxa og báðum hann um að skutla okkur á heimilisfangið á netinu, og viti menn það heimilisfang innihélt enga Hertz bílaleigu, frábært. Hann rúntaði með okkur aðeins um og spurði kollega sína þar til að einn sagði honum frá Hertz bílaleigu 4km frá, keyrðum þangað og viti menn þar stóð drossían, keyrðum af stað eftir að hafa eytt 3klst í ekki neitt, gaman gaman.

Fórum af stað til Nürburg, Gústi á kortinu, Bigg on the wheel, Dóri sofandi afturí. Fengum okkur Burger King á leiðinni, eina sem við fundum. Komum svo til Adenau þar sem ég átti pantað hótel, skoðaði staðfestinguna, en þá var hótelið ekkert í Adenau heldur í Pomster, frábært enn eitt vesenið. Jæja við redduðum því, ég tók wheelið, enda driverinn orðinn þreyttur, Gústi on the map. Tókum svaka sveitavegi til Pomster og loksins þegar við fundum eigandann að hótelinu gátum við fengið lyklana. Hún talaði þýsku og áttum við gott samtal. Svo þegar við komum inn trúðum við þessu varla. Þetta var ekkert hótelherbergi heldur 3ja hæða hús með alles. Herbergi hefði alveg nægt, vorum ekki svo mikið inná herbergi en þetta var bónus og kostaði ekki rass 70 evrur á mann fyrir 3 nætur sem er svona 5600kr íslenskar.

Hérna er húsið góða og kraftlausi Opelinn sem við ökuðum á.


Skelltum okkur strax aftur út og keyrðum uppá svæði. Lætin sem 86.000 manns gáfu frá sér létu á sér kræla á leiðinni að svæðinu. Fórum að aðalsviðinu og sáum Muse spila... þeir voru rosafínir og hljómgæðin góð og þeir líka góðir. Eftir það fórum við á Arctic Monkeys og þeir voru ágætir, betra stúdíoband en vesen með hljóðkerfið á sviðinu þeirra settu kannski strik í reikninginn. Eftir þetta fengum við okkur smá í svanginn og héldum síðan heim á leið og steinrotuðumst.

Öryggisgæslan sem káfaði á okkur, einn gaurinn káfaði fullengi á Bigga

Biggi og Gústi á Muse, doðranturinn fékk að fjúka af Birgi daginn eftir.

Mynd af Muse in action, þeir voru afar góðir.


Ætla bara að segja þetta gott í bili og koma með restina næst.

4 comments:

Anonymous said...

Einn öryggisvörðurinn þuklaði vel og lengi í klofinu á mér en fann ekki neitt, leit svo furðulega á mig og hleipti mér í gegn. Spurning um að fara að troða sokkum í g-strenginn?

Anonymous said...

Þessi ævintýri ykkar hljóma mjög skemmtilega... bíð spenntur eftir fleiri færslum

Anonymous said...

sorry gúst.. ég stal helvítis sokknum þínum.. þess vegna var öryggisvörðurinn svona lengi á mér.. hann var að rúnka helvítis sokknum..

Anonymous said...

sokkur?