Tuesday, June 5, 2007

Bigg og Gúst í heimsókn - Partur 1

Dagur 1
Það er ógerlegt að troða öllu sem að var baukað þegar að Biggi og Gústi komu í heimsókn í eina færslu þannig að ég ætla að skipta þessu eitthvað niður og setja fleiri myndir í staðinn. Reyni að lofa einni á dag. Here we go.

Á sunnudaginn 27. maí komu Biggi og Gústi til okkar hingað til Sviss, ég og Begg lögðum í svaðilför til Basel til að sækja kappana. Við tókum vel á móti þeim og drifum okkur í lest til Neuchâtel, ekki þó lest eins og Finnur myndi vilja fara í, lestarstjórinn (Finnur) verður að bíða betri tíma eftir því.

Þegar komið var heim komu strákarnir sér fyrir í svítunni hérna í íbúðinni og sturtuðu sig á meðan að ég útbjó einn af vinsælum réttum heimilisins : Truten-Nüdeln sem er Kalkúnabringunúðlur. Drukkinn var kaldur bjór með.
Þessi bjór var sá fyrsti en sannarlega ekki sá síðasti það kvöldið. Allir gerðu sig fín og greiddu í miðju (orðið píka er ekki fyrir minn smekk) Það var semsagt borðað og spjallað saman og einn af öðrum runnu bjórarnir niður. Svo var farið niður i bæ þar sem við hittum vinkonur hennar Bergþóru á einhverjum bar niður í bæ. Við strákarnir höfðum um margt að tala og efast ég um að yrt hafi verið á þær eftir að þeir sögðu hæ og kynntu sig. Drukkum öl og vodka í redbull og töltum á næsta bar. Á þeim bara voru pantaðir svona Mixers sem að eru í plasthristara og gefin skotglös með, seinast þegar að undirritaður drakk það var morgundagurinn ekki til að hrópa húrra fyrir.. misstum okkur vel í þessu en Gústi var rólegri. Fórum á pizzastað þar sem borðuð var pizza og stolið soyja sósu, takk Gústi. Fórum heim og Gústi kláraði Truten-Nüdelnið. Get staðfest það að eftir þetta kvöld var eiginlega ekki drukkið meira en einstaka bjór 2-3 í mesta lagi.

Dagur 2

Dagurinn eftir fór í þynnku/rólegheit enda allt lokað á þessum frídegi. Borðuðum á McDonald´s uppá lestarstöð sem var alveg ekki gott. Röltuðum um bæinn í frekar slöku veðri og eyddum tímanum í ekki neitt framað kvöldmat, þá fórum við á Ítalskan stað sem var bara alveg ágætt svei mjur þá. Heim og spjallað, pantaður bílaleigubíll og næstu dagar planaðir og uppí koju og sofið rótt.
Dagur 3

Plönuðum ferð til Interlaken/Svissnesku Alpana kvöldið áður þennan dag. Vöknuðum snemma ferskir og fórum og sóttum bílinn og keytum okkur morgunmat. Fengum "geðveikan" Fiat Idea sem Biggi neitaði fyrst að ferðast í en lagaðist þegar að hann mátti fá ís. Ég settist undir stýrið og Gústinn settist undir kortið og gekk ferðin ljómandi vel, enda fagmenn á ferðinni. Á leiðinni sáum við Manowar bílinn. Bjuggumst við svaka trukker en þá var hann frekar saklaus.









Komum að rótum alpanna og keyrðum uppí fjallabæ þar sem við ætluðum að taka Gondóla uppá fjall en okkur var bent á að keyra niður og fara annað. Á leiðinni upp þá höfðum við talað um hversu gott það væri nú að fá sér wienersnitzel í raspi, sá draumur rættist á leiðinni niður. Myndirnar eru af snitzelstaðnum og útsýninu af honum yfir Interlaken.













Við héldum svo leið okkar áfram niður til Interlaken þar sem við fundum lestarstöðina og héldum með lest uppí fjallið Schilthorn sem er 2970m að hæð. Við tókum semsagt þessa lest, svo gondóla, svo lest, svo 15min gangur gegnum bæ í 1870m hæð, annar gondóli og enn einn gondóli ( já mér finnst gondóli skemmtilegt orð) Þá komum við uppá topp og skoðuðum okkur um og fengum okkur að borða í 3000m hæð í veitingastað sem að snýst. Útsýnið var ekki upp á marga fiska, það var háskýjað eins og Gústi orðaði það. Það var skrítin tilfinning að fara svona hátt og sjá hvernig þeir búa þarna uppi, Svissararnir. Fórum svo niður í Interlaken og sáum þar Hooters veitingastað, þvímiður vou allir saddir, en skelltum okkur í Casino í sárabót. Ég og Gústi gerðumst grófir og lögðum 2500kall(1250kr á mann) undir á svartan í rúllettu spili, en töpuðum, en þetta var mjög gaman samt sem áður. Mikil og góð ferð þrátt fyrir að veðrir hafi ekki verið það besta og útsýnið af fjallstoppnum sjálfum var frekar slappt. Slæ botninn í þetta með nokkrum myndum og næsti hluti kemur þá líklegast á morgun, stay tuned !


Risatafl á kafi í snjó og Er ekki í lagi að borða bara úti?










Biggi notaði hvert tækifæri til að skarta á sólgleraugunum, að þessu sinni í Gondóla og Útsýnið úr gondólanum,meðan hann vaggaði yfir gljúfrinu








Fengum okkur Svissneskan platta, franskar og einn bjór. Ekki okkar íslendinga stíll að borða álegg og mygluost með súrum gúrkum og súrsuðum perlulauk, franskarnar voru hinsvegar ágætar og bjórinn með.

1 comment:

Anonymous said...

hæ :) mér var sagt að það væri skylda að kvitta fyrir komu sína hérna :)
kvitt kvitt