Jæja, þá er það ákveðið. Ég, Bigg og kannski Gúst ætlum að skella okkur á Rock Am Ring í Þýskalandi til að berja nokkur goð eins og Scissor Sisters, Papa Roach og Linkin' Park augum, nei ertu ekki að djóka ? Jú auðvitað er ég að djóka láttu ekki eins þú sért nýsloppinn útúr fjölskylduboði. En þrátt fyrir að vissulega verði þessi bönd þarna verður annað betra á boðstólnum. Ef einhver vill koma með þá má sá hinn sami koma með.
Hér í Sviss er orðið frekar heitt 15-20° og sól á lofti og alltílagi með það. Var nýverið spurður hvort það væri ekki fínt að vera í Evrópu og hvort ég væri ekki byrjaður að drekka rauðvín og étandi baguette brauð undir tré niður við vatn. Verð nú að segja að þó maður búi í Evrópu þýðir það ekki að maður eigi að borða baguette brauð og drekka léttvín hvað þá niður við vatn undir einhverju tré hugsandi um lífið og tilveruna. Enginn maður sem ég þekki hefur þolinmæði um að hugsa um lífið undir einhverju tré með baguette í annari og léttvínsflösku í hinni. Hinsvegar væri kannski möguleiki á einnota grilli og bjór en ekki undir tré og ekki hugsandi um lífið og mannlífsandann. Þann sem langar þetta hlýtur að lifa í draumaheimi.
Það sem hinsvegar er Evróspkt eru þröngar verslunargötur þar sem að tónlistarmenn spreyta sig á hverju horni, sumt af því er alveg virkilega flott og var ein slík sveit að spila niðrí bæ um helgina, gott ef ekki búin að fá sér smá gras í gufuformi. Þau voru fimm með harmoniku, trompet, trommur, gítar og einhvern skrítinn lúður, alveg virkilega töff. En til þess að njóta þess þurfti ég ekki glas af léttvíni samt...
jæja nú er nóg komið bæ.
3 comments:
"Opið bréf til Guðs" (Ekki Dóra)
Hættu að senda mér sms. Minnið er alveg frábært og eins og Jesu sagði á Krossinum á meðann hann beið eftir því að deyja. "Þolinmæði er dyggð"
Það kemur allt í ljós á föstudaginn(þó ekki Föstudaginn langa...enda er hann löngu liðinn þótt langur sé.)
Ég er einmitt nýkomin úr fjölskylduboði.. samt sit ég undir hillu (unnin úr tré) hugsa um tilveruna (ekki lífið) og mannslíkamann (ekki andann) með rúnstykki í annarri (ekki franskt brauð) og drekk léttvatn (ekki vín)
er ég sat þarna og hugsaði, fattaði ég allt í einu að fjólublái ljósastaurinn er horfinn, tilviljun? ég held ekki!!!!!!
sá einu sinni gaur spila á strompet... vá...
Post a Comment