Jæja þá erbloggað frá Sviss.
Nóttina fyrir flugið vöknuðum við aðeins einum og hálfum tíma á eftir áætlun vegna óviðráðanlegra atburða. Sem betur fer vaknaði Óli til að vekja okkur og það var brunað á mettíma á Leifsstöð þar sem við náðum 12min fyrir lokun á check-in og það var engin röð. Í London biðum við svo í 8 "skemmtilega" klukkutíma eftir flugi til Sviss. Gistum í Genf eina nótt og fórum svo til Neuchatel daginn eftir med lest. Þá fórum við til að fá lyklana að íbúðinni og til að skoða hana, en okkur til mikillar furðu var andskotann ekki neitt þarna inni nema 2 sængur, einn koddi og einhver ómerkileg basthilludrasl. Þannig við slepptum af okkur beislinu í IKEA og sofum núna á dýrindis dýnu. Annars er lífið bara gott hérna, internetið kom í dag sem er mjög gott. verðið á öllum mat er svipað eða dýrara hér en heima en bensín og bjór og slíkt mun ódýrara. Nenni ekki að skrifa meira í bili í bili.
Núna er föstudagskvöld og er líklegt að það verði farið eitthvað út á lífið.
Lifið heil!
1 comment:
Ussuss svo þetta mun koma vel út fjárhagslega fyrir ykkur. Ég meina hver þarf meira en bensín og bjór til að lifa :)
Hafið það ljómandi gott og ég kem svo í heimsókn þegar aðtæður í gestahúsinu í garðinum verða orðnar viðunandi...
Post a Comment