Wednesday, February 28, 2007

Sumt skýtur mann í bakið.

Ég er ekki viss um að margir muni eftir því þegar ég skrifaði tvær fréttir á hornafrettir.net um að ég væri fluttur til Sviss. Í fréttunum tveim (þessari og þessari) hef ég sjaldan bullað jafnmikið, en ástsæl móðir mín var meðal annars spurð hvernig mér vegnaði útí Sviss, og mamma hennar beggu var líka spurð, þær vissu ekki betur en að ég væri í skóla í Reykjavík. Einnig fékk ég mörg MSN skilaboð og hélt ég bullinu áfram þar. En nú er þetta aldeilis komið í bakið á mér því að eftir svona átta og hálfan tíma flýg ég út til Sviss þar sem ég hyggst ala manninn í nokkra mánuði. Ég mæli semsagt með því að stilla bullinu í hóf, þið gætuð lent í því.

Ein reynslusaga í lokin:
Klippikona:Hvernig á ég að klippa þig?
Dóri:Bara svona venjulega, taka slatta og þynna það en skilja svolítið eftir svo það sé hægt að greiða sér eitthvað.
Klippikona:Já, ekkert mál, viltu að ég þynni með skærum eða vél ?
Dóri: Hmm, mér er alveg sama(sokkinn í séð og heyrt slúðrið)
Klippikona: Ég nota þá vélina
... Eftir að hún hafði verið með vélina að vopni á hausnum á mér í dágóða stund þá reif ég mig úr slúðrinu og horfði í spegilinn, ég ætlaði ekki að trúa því sem ég sá! Hún hafði rakað af mér allt hárið nema einhvern hnoðra ofan á hausnum á mér, mér stóð nú ekki á sama.
Dóri: Vá tókstu svona helvíti mikið !!!
Klippikona: Já þetta er svo svakalega mikið í tískunni í dag.
Dóri: Eins gott að ég er að flytja til útlanda eftir 2 daga. ég grét.

4 comments:

Anonymous said...

Haha hnoðri...!!! Gangi ykkur vel í Svisslandi :)

Anonymous said...

hahaha.. góð saga. Gangi ykkur skötuhjúum vel útí sviss.. við verðum svo að taka eitt djamm þegar þið komið til baka!! Þetta gengur ekki lengur..
Kv. Steinunn og Finnur

Anonymous said...

yay fann síðuna :) nú fáið þið ekki frið, sendi reglulegar upplýsingar af ykkar ástsæla yfirmanni í smokehill hehehehe:) vona að þið hafið það sem best. Kv. Magga

Anonymous said...

gott á þig...