Tuesday, October 9, 2007

Myndir


Hofum verid lot a myndavelinni, thad er hundleidinlegt ad hafa hana hangandi a ser. Myndirnar eru lika storar og lengi ad hladast inn herna. Sidasti dagurinn I singapore er i dag svo forum vid til Malasiu a morgun og vid gistum i bae rett handan vid landamaerin sem heiti Johor Bahru og holdum sidan afram upp malasiu. I dag var verslad sma og skodad sig um og i kvold forum vid 2 a einhverja eyju og skodum hana, svaka spenno.
en herna eru faeinar myndir eins og lofad var.






Raymond og Patricia og einn af krobbunum sem vid voldum i matinn, alveg dilissius. Hvad segiru Jona ? hann er mikid augnkonfekt hehe.



Vid ad drekka nypressadan safa ur sykureir, agaett a bragdid.



Bergthora fyrir fram skyjakljufrana.

Thetta tekur svo langan tima ad eg gefst upp, verdum i bandi.

Sunday, October 7, 2007

Asiuferd - Dagar 1 - 3

Jamm og jaeja.


Dagur 1


Voknudum snemma 4. Okt, hittum Jon og Agustinu i flugstodinni hans Leifs og tau voru hress.

Forum fra Islandi kl 7:40 og lentum i London kl 11:35. Ta tok vid 7 tima bid thar sem byrjadi ekki vel en eftir ad vid komumst inni eitthvad Visa Lounge thar sem allt var fritt, matur og drykkir ta batnadi su bid til muna og timinn leid fljott. Eftir thetta tok vid 13tima flug fra london til Singapore. Aftan a hverju saeti var skjar med fjarstyringu thar sem haegt var ad velja um nyjustu biomyndirnar, tv, utvarp, og nintendo leiki til ad spila. Thessu fylgdu 2 maltidir, onnur fimm retta og hin fjogurra retta og badar voru creditadar a Gordon Ramsey ofurkokk. Thratt fyrir thetta var frekar leidinlegt ad sitja i flugvel og timinn virtist lida haegar og haegar.



Komum til Singapore um 2 ad stadartima thar sem Raymond vinur okkar tok a moti okkur a flugvellinum. Og her med verdur honum lyst.

Raymond

Dori kynntist Raymond thegar hann var kokkur a Hallormsstad og Raymond var desperate Singapore bui med enga gistingu a Islandi, Dori skipulagdi hringferd fyrir hann og Raymond og Patricia, konan hans voru afar thakklat og sendu mat og allskonar dot til islands i stadinn. Patricia vinnur i banka en vid vitum ekki almennilega hvad Raymoind gerir en hann gengur um med 4 flotta sima a ser og segist sjalfur vera "part time alcoholic" eda alkaholisti i hlutastarfi. Hann gengur avallt um i naerbol og stuttbuxum. Hann ekur um a svakalegum benz og a heima i svaka finri ibud. Vinur hans sem sotti okkur a hostelid einn daginn sagdi ad Raymond veari hlutabrefamidlari og longu haettur ad vinna en ferdadist i stadinn mikid. Tau gerdu ferdina okkar til Singapore ogleymanlega.

Framhald a degi 1....
Raymond skutladi okkur uppa hotel og svo budu tau okkur ut ad borda. Augnlokin okkar voru eins og vel fullir innkaupapokar ad thyngd eftir 240 tima ferdsalag og afarlitinn flugvelasvefn. En engu ad sidur var maturinn godur servasrnitnn kom og leyfdi okkur ad velja lifandi krabba og vid smokkudum a morgum local rettum. Dori fekk ser 1 bjor og eftir hann var hann farinn ad tala full mikid eftir halft glas, svo mikil var threytan, heim i koju og sofid vel, en ekki lengi... thvi vid voknudum vid eitthvad bank a hurdina okkar, vid thordum ekki til dyra og thar vid sat.
Dagur 2
Voknudum "hress" i thad ad vinur hans raymond sotti okkur i mat. Hann skutladi okkur a veitingastad thar sem var tekid a moti okkur og visad til saetis. Tegar allir voru sestir kynnti folk sig og ta voru tetta eigandi veitingastadakedjunnar, markadsfulltrui, og fjarmalastjor asamt fjarfestum samankomnir bara utaf mer og Bergthoru... okkur leid frekar asnalega i turistafotunum, thott ad ray vaeri ad sjalfsogdu i stuttbuxum og hvitum naerbol. Raymond var tha i fararbroddi fjarfesta a einni besta veitingahusakedju Singapore sem eru 13 talsins.
Vid fengum thad flottasta ad borda sem var allt otrulega gott. Forstjorinn for med okkur tur um eldhusid og eg turfti ad kynna mig fyrir framan alla vidstadda... ekki mitt uppahalds. En jaeja margar nyjar hugmyndir af mat eftir thetta.
Tokum nedanjardarlest til central Singapore og skodudum okkur um i Little India og svo i verslunar midstodum og morkudum, allt er odyrt nema gisting herna.
Dagur 3
Voknudum snemma til ad hitta Raymond og Patriciu til ad fara yfir til Malasiu. Vid forum til ad geta kannad hvernig thad er ad fara thangad yfir, og thau til ad kaupa ologlegar dvd myndir. Thay fengu 56 dvd myndir a 8 thusund kronur, ekki slaemt thad.... Fyrst forum vbid a afvikin hverfisveitingastad thar og bordudum nudlur, og mikid af folki horfdi mikid a okkur, enda ekki mikid um ferdamenn i thessum party, frekar skitugur. Skodudum verlsunarmidstodar, ekkert keypt og forum sidan heim og svafum vel og lengi, nettha ad jafna okkur a timamismun og ferdalagi.
Dagur 4
Voknudum um hadegi og forum ut ad skoda verslunar midstodar, ekkert keypt samt enda bara med bakpoka medferdis. Kiktum a netcafe og pontudum gistingu i Malasiu og Thailandi og erum ad paela ad kikja til Vietnam og Cambodiu, en ekkert er akvedid enntha. Hittum svo Ray og Patriciu i kvoldmat bordudum kjukling og hrisgrjon, afar gott. Forum svo i thad sem Singaporemenn kalla hawker centre sem er svona hverfismatarmarkadur. Thad eru svona 10-15 matarbasar sem selja allskyns mat, thangad forum vid i desert sem var mulid isfjall (svo stort) med nokkrum bragdtegundum, tad fyrir 4 kostadi 90kronurm, ekki slaemt. Forum sidan a local barinn hja Raymond og smokkudum meiri mat(erum ad springa) og drukkum Singapore bjor sem heitir Tiger, voda godur (en ekki mikid Mamma) og toludum um Island og Singapore og allt thess a milli, vorum svo ad koma heim allt er rosa gott og thad verdur skritid ad komast ut verndudu umhveri fra Singapore til Malasiu. Verdum i bandi....
og myndir kannski a morgun

Monday, October 1, 2007

Aðeins 3 dagar í brottför...


Jæja þá er að koma að því...

Við förum frá Höfn á morgun og svo út til London á fimmtudag þar sem að tekur við "skemmtileg" nokkurra tíma bið eftir tengifluginu til Singapore.

Við ætlum að reyna að vera dugleg að setja hér inn einhverjar ferðasögur næstu mánuðina, fylgist spennt með :)


Myndin er tekin í Prag í vor.

Thursday, June 14, 2007

Rock Am Ring ferðin dagar tvö og þrjú.

Dagur 6

Þá er byrjað þar sem frá var haldið. Við vöknuðum eftir ágætis nætursvefn, Gústinn fékk sérrúm í kajllaranum eftir að hafa viðurkennt fantasíur sínar fyrir okkur. Ég og Birgir deildum hinsvegar hjónarúmi á þriðju hæð hússins og kom okkur ágætlega saman. Eins og ég hafði áður komi að vöknuðum við ferskir og skelltum 2 frosnum pizzum í ofninn í brunch. Fórum í sturtu (saman) og tókum síðan rúnt niður til Adenau þar sem að Gústinn tók öll völd á Opelnum og minnti mig á sjálfan mig ungan í Colin McRay rally 2. Eftir góða ferð til Adenau fórum við heim á leið enda áttu tónleikar sem eitthvað var varið í ekki að byrja fyrr en um 16:00.



Á þessum tímapunkti (14:02:36) ákvað Birgir að vera heima þangað til um kvöldið til að hvílast enda hálfslappur að verða. Ég og Gúst fórum því á svæðið og röbbuðum lítið eitt saman. Skelltum okkur á Wolfmother á stóra sviðinu. Wolfmother eru ástralskt band sem að minnir á Zeppelin oft á tíðum. Guðjón Progster á heiðurinn af því að ég hlustaði á þá.Þeir voru mjög kröftugir og góðir með skemmilega sviðsframkomu.


Strax á eftir þeim á stóra sviðinu áttu Kaiser Chiefs að koma fram, Gústinn og ég ákváðum þá að fara í fremsta hlutann til að upplifa það. Kaiser Chiefs klikkuðu ekki fyrir mitt leyti og söngvarinn var líflegur og lögin pössuðu vel við svona hátið uppá klapp og slíkt.


Þá var haldið heim á leið og ekki man ég hvað við borðuðum þetta kvöld eða hvar. Anywho þá var þetta stóra kvöldið. Við mættum frekar snemma, 50min fyrir tónleika og fengum okkur smá bjór og gíruðum okkur upp fyrir goðin, Smashing Pumpkins. Það var búið að gera mikið úr "The return of Smashing Pumpkins" á milli atriða alla tónleikana og þau klikkuðu ekki. Þau mættu í hvítum kuflum. Brosið á Billy Corgan eða glottið þegar þau byrjuðu á Today var ógleymanlegt og upplifunin geðveik. Hvar Corganinn finnur alla þessa kvenkyns bassaleikara má guð vita en Smashing Pumpkins voru ógurlega góð og brugðust okkur ekki.



Við slepptum hinsvegar eins og 2 síðustu Pumpkins lögunum til að koma okkur í stellingar fyrir Slayer sem að áttu að spila á Alternastage sem var hitt "stóra" sviðið. Ég og Biggi höfum lengi haft gaman að Slayer en tónlistin sem að þeir spila er kannski ekki fyrir alla. Aumingja þeir. Slayer steig á sviðið undir byrjuninni á God Hates Us All. Slayer brást ekki, söngvarinn frekar falskur í byrjun en þétt undirspilið bjargaði því og þá sérstaklega trommuleikurinn hja Dave Lombardo sem var ótrúlegur. Slayer er hljómsveit sem á kannski frekar að spila í litlu rými sem að skapar stemmningu og hávaða frekar en á útihátíð. Og því voru eftirfarandi orð frekar góð :

Singer : Do you want to die !?!.
Crowd : Yeah... frekar hátt en ekki so mikið.
Singer: Sounds to me like you're dead already.

Snilldardagur og sérstaklega að sjá bæði slayer og pumpkins, eitthvað sem að maður var byrjaður að búast við að yrði ekki þegar að pumpkins hættu hér um árið.



Fórum heim, smá bjór, smá snakk, og sjónvarp, sofnuðum.

Dagur 7og8

Vöknuðum. Biggi var veikur um nóttina og ákvað að vera heima á meðan að ég og Gústi fórum í Pizzu, þykk og góð var hún og helmingurinn endaði me aftur heim. Keyptum vökva handa Bigg og eitthvað til að muncha á. Þetta kvöldið var stefnan sett á Travis og Megadeath. Við tjilluðum aðeins heima og fórum að borga fyrir húsið, þurftum að keyra til Adeanu aftur til þess. Komum aftur heim og þrifum aðeins eftir okkur. Við fórum síðan allir á Velvet Revolver og það var gaman að sjá þessar gömlu kempur á sviði, og söngvarinn vel í því.



Ég og Gúst fórum í Barwiler sem er lítill bær þarna nálægt og fengum okkur að borða, afargott. 3steikur naut, svínahryggur og svínalund með sveppum í bernaise sósu, bacon-beans og frönskum on the side. Held nú reyndar sem kokkur að Bacon-Beans hafi verið vafið í bacon bara útaf því það sándar vel, passaði engan veginn saman. Er máltíðin fyrir utan það : snilld.


Þaðan héldum við á Travis og náðum seinni helmingnum hjá þeim, Travis voru bara góðir, sánduðu vel og náði crowdinu "memm". Eftir það héldum við heim á leið.



Megadeath áttu að byrja kl 01:30 og þá sáum við að við myndum ekki ná þeim því að það þurfti að keyra til Frankfurt-Hahn flugvallarins þar sem að strákarnir áttu bókað flug heim kl 06:40. Við lögðum að stað milli 1-2 um nóttina til Hahn og lentum í umferðarteppu útaf umferðarslysi. Eftir 45minótna bið og árangur uppá 5metra áfram þá ákváðum við í sameiningu að snúa við og reyna að komast uppá hraðbrautina annarstaðar. Til að gera verulega langa og leiðinlega ferð aðeins styttri þá enduðum við í þvílíku fokki því að hraðbrautin á kortinu fór bara one way. Við náðum, þreyttir og pirraðir á flugvöllinn 30 min fyrir flug, og viti menn það reddaðist. Ég knúsaði drengina bless og við felldum tár, samdi ég þá þessa stöku:

Drengir mínir ekki gráta.
Þó að ég sé bestur.
Gústi þú vilt g-strenginn máta.
en ert þó ekki sem verstur.

Þetta var samið með tilliti til comments gústa í seinustu færslu um að hann klæðist g-streng.

Ég tók síðan 1.5klst rútu til Frankfurt Bahnhof, lest til Basel og þaðan til Neuchatel. Gott að koma heim þar sem skúringar og strit beið mín eftir að hafa lifað í vellystingum með vinum mínum. Þá er Sögunni lokið.

Vona að fólk hafi haft gaman að þessari viku okkar drengjanna og vill ég þakka þeim fyrir geðveika tíma og auðvitar var ekki bloggað um allt sem gerðist.

Í dag labbaði ég 14km um fjöll og fyrnindi og tók cameruna með, lenti í mikilli svaðilför og blogga kannski um það á morgun, hver veit.

Sunday, June 10, 2007

Gústi og Biggi í Neuchatel - Aftur á vit ævintýranna - Partur 3

Jæja krakkar mínir, þá heldur frásögnin áfram þar sem frá var haldið en fyrst þetta. Nú eru bara 13 dagar í að ég, dóri haldi heim á leið. Já tíminn flýgur þegar þú ert í fríi og í næstum hverri viku tekuru þér frí frá fríinu og skellir þér eitthvað. En lífið er ekki bara frí frá fríinu og þarf maður víst að fara að vinna og valdi ég að vinna á litlu laxveiðihóteli nálægt Hvolvsvelli , 35-40manns í hádegi og á kvöldi. Svona skemmtilega nálægt bænum og svo er hægt að bruna heim ef svo ber undir. Bergþóra klárar síðann skólaönnina og kemur svo heim um verslunarmannahelgina er marka má seinustu fregnir. En núna af allt öðru, og held ég áfram sögn minni af frægðarför Bigga og Gústa til Svisssss.

Á barnum yfir bjórnum þá ræddum við um væntanlega ferð okkar á Rock Am Ring festivalið sem haldið er í Nürburg í Þýskalandi, nánar tiltekið á Formula 1 brautinni þar. Ég hafði pantað það sem ég hélt að væri hótelherbergi með aukarúmi í bæ rétt hjá Nürburgring og svo ætluðum við að taka lest morguninn eftir : Neuchatel-Basel Basel-Mainz. Og bílaleigubíl frá Mainz-Nürburg. Eftir þessar djúpu samræður og grátandi trúna héldum við heim í koju og sváfum rótt þangað til að klukkan klingdi. Klárað var að pakka og allir settu á sig andlitið og drulluðu sér af stað niður á strætóstopp. Strætó upp á lestarstöð keyptir miðar, sammari og íste á línuna nema Gústi... einhverneginn fann hann alltaf nýja tegund af Powerade í töskunni sinni, misgóðar eins og þær voru margar.

Lestarförin til Mainz gekk vel. Við leituðum strax af bílaleigunni sem samkvæmt internetinu átti bara að vera á lestarstöðinni, en neinei hún var bara ekkert þar og enginn vissi hvar hún var en okkur var þó margoft bent á allt aðra bílaleigu. Allavega eftir að hafa rölt útum alla lestarstöð Mainz og nágrenni með farangurinn fórum við inná internetkaffi. Fengum að fara á internetið þar en konan sagði, passaðu þig efst á stiganum, það ældi einhver þar... jájá takk fyrir það. Þau voru ekkert á því að þrífa neitt upp þessir 4 starfsmenn þarna og ælan var á sínum stað þegar við fórum, geðslegt.

Fundum taxa og báðum hann um að skutla okkur á heimilisfangið á netinu, og viti menn það heimilisfang innihélt enga Hertz bílaleigu, frábært. Hann rúntaði með okkur aðeins um og spurði kollega sína þar til að einn sagði honum frá Hertz bílaleigu 4km frá, keyrðum þangað og viti menn þar stóð drossían, keyrðum af stað eftir að hafa eytt 3klst í ekki neitt, gaman gaman.

Fórum af stað til Nürburg, Gústi á kortinu, Bigg on the wheel, Dóri sofandi afturí. Fengum okkur Burger King á leiðinni, eina sem við fundum. Komum svo til Adenau þar sem ég átti pantað hótel, skoðaði staðfestinguna, en þá var hótelið ekkert í Adenau heldur í Pomster, frábært enn eitt vesenið. Jæja við redduðum því, ég tók wheelið, enda driverinn orðinn þreyttur, Gústi on the map. Tókum svaka sveitavegi til Pomster og loksins þegar við fundum eigandann að hótelinu gátum við fengið lyklana. Hún talaði þýsku og áttum við gott samtal. Svo þegar við komum inn trúðum við þessu varla. Þetta var ekkert hótelherbergi heldur 3ja hæða hús með alles. Herbergi hefði alveg nægt, vorum ekki svo mikið inná herbergi en þetta var bónus og kostaði ekki rass 70 evrur á mann fyrir 3 nætur sem er svona 5600kr íslenskar.

Hérna er húsið góða og kraftlausi Opelinn sem við ökuðum á.


Skelltum okkur strax aftur út og keyrðum uppá svæði. Lætin sem 86.000 manns gáfu frá sér létu á sér kræla á leiðinni að svæðinu. Fórum að aðalsviðinu og sáum Muse spila... þeir voru rosafínir og hljómgæðin góð og þeir líka góðir. Eftir það fórum við á Arctic Monkeys og þeir voru ágætir, betra stúdíoband en vesen með hljóðkerfið á sviðinu þeirra settu kannski strik í reikninginn. Eftir þetta fengum við okkur smá í svanginn og héldum síðan heim á leið og steinrotuðumst.

Öryggisgæslan sem káfaði á okkur, einn gaurinn káfaði fullengi á Bigga

Biggi og Gústi á Muse, doðranturinn fékk að fjúka af Birgi daginn eftir.

Mynd af Muse in action, þeir voru afar góðir.


Ætla bara að segja þetta gott í bili og koma með restina næst.

Thursday, June 7, 2007

Bigg and Gúst go large in Neuchatel.

Bigg og Gúst í heimsókn - Partur 2

Dagur 4

Þá verður haldið áfram þar sem frá var horfið, ákkurat núna skjálfa hjá manni rúðurnar útaf þrumuveðri sem er úti. Bergþóra er eitthvað í skólanum eins og vitleysingur þannig ég keypti mér strútakjöt í dag og henti því í teriyaki, það er ekki hægt að koma því ofaní hana jafnvel þó maður bindi hana niður... nei ég segi svona. Já en allavega þá er komið að degi 4 hann fór fram í sweet sweet Neuchâtel. Ákveðið var að nota daginn í smá hvíld og að versla en það kom skemmtilega á óvart hversu mikið varð úr honum. Vöknuðum klukkan 10 og dressuðum okkur upp og settumst í Fiatinn og keyrðum niður í verslunarmiðstöð sem er líka knattspyrnuvöllur, líkamsrækt, innanhússvellir, bílastæðahús og slökkviliðsstöð.


Myndarlegasta vallarstæði og þess má geta að Neuchatel Xamax FC vann deildina sína og fagnaði ákaft daginn sem að strákarnir komu. Mikið var verslað um þennan morgun og flugu myndavélar, föt og hinn ýmsi varningur úr hillum verlslana. Eftir það hittum við síðan Bergþóru í lunchara og varð Pizza fyrir valinu. Eftir það skelltum við okkur í verslunarferð um bæinn aðeins og þá tók að lifna yfir veðurguðunum. Við ákváðum á þeim tímapunkti að leigja okkur bát og sigla honum vel og mikið, keyptum okkur nesti og héldum út á öldurnar.

Skál fyrir því


Kapteinninn lét ekki segja sér til hvað átti að gera og sagðist þarna sjá til lands, ekki er enn vitað hvað hann átti við með því.


Eftir vel heppnaða bátsferð lá leið okkar í sundlaug staðarins þar sem við slökuðum aðeins á en þetta er leiðinlegasta sundlaug sem við höfum komið í. Skemmtum okkur samt ágætlega en svissararnir eru ekkert að hita vatnið í laugunum og hafa það bara í góðri bergárstemmningu.

Eftir þetta röltuðum við heim og ákváðum að skella okkur í körfu og fótbolta og sýndu menn mikinn metnað og ógurleg tilþrif, eftir heilsuna var þá upplagt að fara að sækja eins og 4 pizzur. Gústa pizza datt einhverneginn í gólfið, góður gústi. En það var nóg handa öllum. Eftir þetta var spjallað, drukknir 1-2 öl og svo farið í háttinn enda stórplön næsta dag já, já, já.


Dagur 5

Þá er komið að degi fimm, vöknuðum afar snemma, 6 að mig minnir... en kannski var það 7. Fórum öll saman í bílinn góða, ég undir stýrið og gústinn á kortinu. Skelltum okkur til Europa-Park í bænum Rust sem er hjá Freiburg og þar. . Keyrslan gekk vel og um 11 vorum við komin í garðinn. Þar var baukað ansi mikið af hinu og þessu og endaði þetta sem hinn besti dagur. Ætla að láta myndirnar tala sínu máli enda óþarfi að babla um þetta endalaust. Á leiðinni heim fengum við okkur grískt að borða, mjög gott. Komum frekar þreytt heim en Begga fór að læra og rak okkur á barinn, við fórum á barinn og fengum okkur 2-3 öl og spjölluðum um Rock-am-Ring helgina sem var framundan.


Bloggerin vill ekki leyfa mér að setja inn fleiri myndir í bili í bili, og ég nenni ekki að setja inn fleiri en þessar, þangað til næst - au revoir madames et monseuirs.

Tuesday, June 5, 2007

Bigg og Gúst í heimsókn - Partur 1

Dagur 1
Það er ógerlegt að troða öllu sem að var baukað þegar að Biggi og Gústi komu í heimsókn í eina færslu þannig að ég ætla að skipta þessu eitthvað niður og setja fleiri myndir í staðinn. Reyni að lofa einni á dag. Here we go.

Á sunnudaginn 27. maí komu Biggi og Gústi til okkar hingað til Sviss, ég og Begg lögðum í svaðilför til Basel til að sækja kappana. Við tókum vel á móti þeim og drifum okkur í lest til Neuchâtel, ekki þó lest eins og Finnur myndi vilja fara í, lestarstjórinn (Finnur) verður að bíða betri tíma eftir því.

Þegar komið var heim komu strákarnir sér fyrir í svítunni hérna í íbúðinni og sturtuðu sig á meðan að ég útbjó einn af vinsælum réttum heimilisins : Truten-Nüdeln sem er Kalkúnabringunúðlur. Drukkinn var kaldur bjór með.
Þessi bjór var sá fyrsti en sannarlega ekki sá síðasti það kvöldið. Allir gerðu sig fín og greiddu í miðju (orðið píka er ekki fyrir minn smekk) Það var semsagt borðað og spjallað saman og einn af öðrum runnu bjórarnir niður. Svo var farið niður i bæ þar sem við hittum vinkonur hennar Bergþóru á einhverjum bar niður í bæ. Við strákarnir höfðum um margt að tala og efast ég um að yrt hafi verið á þær eftir að þeir sögðu hæ og kynntu sig. Drukkum öl og vodka í redbull og töltum á næsta bar. Á þeim bara voru pantaðir svona Mixers sem að eru í plasthristara og gefin skotglös með, seinast þegar að undirritaður drakk það var morgundagurinn ekki til að hrópa húrra fyrir.. misstum okkur vel í þessu en Gústi var rólegri. Fórum á pizzastað þar sem borðuð var pizza og stolið soyja sósu, takk Gústi. Fórum heim og Gústi kláraði Truten-Nüdelnið. Get staðfest það að eftir þetta kvöld var eiginlega ekki drukkið meira en einstaka bjór 2-3 í mesta lagi.

Dagur 2

Dagurinn eftir fór í þynnku/rólegheit enda allt lokað á þessum frídegi. Borðuðum á McDonald´s uppá lestarstöð sem var alveg ekki gott. Röltuðum um bæinn í frekar slöku veðri og eyddum tímanum í ekki neitt framað kvöldmat, þá fórum við á Ítalskan stað sem var bara alveg ágætt svei mjur þá. Heim og spjallað, pantaður bílaleigubíll og næstu dagar planaðir og uppí koju og sofið rótt.
Dagur 3

Plönuðum ferð til Interlaken/Svissnesku Alpana kvöldið áður þennan dag. Vöknuðum snemma ferskir og fórum og sóttum bílinn og keytum okkur morgunmat. Fengum "geðveikan" Fiat Idea sem Biggi neitaði fyrst að ferðast í en lagaðist þegar að hann mátti fá ís. Ég settist undir stýrið og Gústinn settist undir kortið og gekk ferðin ljómandi vel, enda fagmenn á ferðinni. Á leiðinni sáum við Manowar bílinn. Bjuggumst við svaka trukker en þá var hann frekar saklaus.









Komum að rótum alpanna og keyrðum uppí fjallabæ þar sem við ætluðum að taka Gondóla uppá fjall en okkur var bent á að keyra niður og fara annað. Á leiðinni upp þá höfðum við talað um hversu gott það væri nú að fá sér wienersnitzel í raspi, sá draumur rættist á leiðinni niður. Myndirnar eru af snitzelstaðnum og útsýninu af honum yfir Interlaken.













Við héldum svo leið okkar áfram niður til Interlaken þar sem við fundum lestarstöðina og héldum með lest uppí fjallið Schilthorn sem er 2970m að hæð. Við tókum semsagt þessa lest, svo gondóla, svo lest, svo 15min gangur gegnum bæ í 1870m hæð, annar gondóli og enn einn gondóli ( já mér finnst gondóli skemmtilegt orð) Þá komum við uppá topp og skoðuðum okkur um og fengum okkur að borða í 3000m hæð í veitingastað sem að snýst. Útsýnið var ekki upp á marga fiska, það var háskýjað eins og Gústi orðaði það. Það var skrítin tilfinning að fara svona hátt og sjá hvernig þeir búa þarna uppi, Svissararnir. Fórum svo niður í Interlaken og sáum þar Hooters veitingastað, þvímiður vou allir saddir, en skelltum okkur í Casino í sárabót. Ég og Gústi gerðumst grófir og lögðum 2500kall(1250kr á mann) undir á svartan í rúllettu spili, en töpuðum, en þetta var mjög gaman samt sem áður. Mikil og góð ferð þrátt fyrir að veðrir hafi ekki verið það besta og útsýnið af fjallstoppnum sjálfum var frekar slappt. Slæ botninn í þetta með nokkrum myndum og næsti hluti kemur þá líklegast á morgun, stay tuned !


Risatafl á kafi í snjó og Er ekki í lagi að borða bara úti?










Biggi notaði hvert tækifæri til að skarta á sólgleraugunum, að þessu sinni í Gondóla og Útsýnið úr gondólanum,meðan hann vaggaði yfir gljúfrinu








Fengum okkur Svissneskan platta, franskar og einn bjór. Ekki okkar íslendinga stíll að borða álegg og mygluost með súrum gúrkum og súrsuðum perlulauk, franskarnar voru hinsvegar ágætar og bjórinn með.