Neuchâtel er mekka reykingamannsins. Í Neuchâtel eru flestar sígarettur evrópubúa framleiddar, ef að þú lesandi góður reykir og tekur dýrmætan tíma þinn í að lesa á pakkann þá ætti að standa að þær séu framleiddar hér. Í einum af mörgum heilsugöngutúrum okkar (aha...) nánar tiltekið við heimkomu fundum við skrítna lykt, lykt sem maður finnur þegar maður hnusar uppúr sígarettupakka. Þetta gæti þá talist sem "peningalykt" þessara bæjar, það mætti semsagt líkja sígarettulyktinni við bræðsluilminn heima, þó að mér þykji hann talsvert betri.
En hér eru ekki bara framleiddar sígarettur eins og mjöl heldur reykja heimamenn allstaðar, inní verlsunum, verslunarmiðstöðum, börum og á veitingastöðum og það ekkert lítið heldur svíður manni oftast nær í augun. Það er til lítils að segja "Table pour deux - non fumeé" því að maður kæfist samt í sígarettureyk þegar maður reynir að halda í sér andanum á meðan á pizzuáti stendur.
-En yfir í allt aðra sálma.
Atvinnuleit mín í Sviss gengur hægt eins og er. Kjarni málsins er að til að fá vinnu í Sviss þarftu að vera með atvinnuleyfi, en til að fá atvinnuleyfi þarftu að vera með vinnu. Svolítið sérstakt en þannig er það bara og svoleiðis halda þeir líklegast ólöglegum innflytjendum eins og mér sjálfum í skefjum. Annað vandamál er líka það að á hótelum og veitingastöðum er lítið að gera á þessum árstíma, ég hef farið á 8 staði, en allstaðar fékk ég svörin að þeir væru fullmannaðir þangað til í sumar - en það er þegar að ég fer heim að vinna. Þó á ég að koma aftur á eitt hótel á morgun sem ég kíkti á áðan sem hafði lítinn tíma áðan og annað á mánudag þar sem konugreyið sem annast job hunters eins og mig sjálfan var í fríi. Á einu hótelinu gat ég fengið vinnu í Júni - September en það hentaði mér ekki en ég átti ágætis spjall við þann hótelstjóra sem óskaði mér góðs gengis, en sagði þó að það væri lítil von á þessum tíma.
Einnig var mér sögð frekar niðurdrepandi, en fyndin saga af tveimur íslenskum kokkum sem ákváðu að fara til Sviss saman til að vera ríkir. Þeir leigðu sér flotta íbúð á flottum stað og byrjuðu að leita sér að vinnu, ekkert gekk hjá þeim í langan tíma.... Einn þeirra fékk vinnu við uppvask en hinn endaði sem au pair eða eitthvað slíkt. Alveg eins og sagan sem blessunin hún Imba sagði mér af tveimur kokkum sem unnu á Reykholti á undan mér sem fóru til Sviss/Austurríkis til að vera ríkir og frægir en enduðu í að sjóða sér skuldasúpu sem þeir væru líklegast enn að borga. Kannski var Imba þarna að vara mig við ég veit það ekki en hún sér ýmislegt sem að aðrir sjá ekki. En hún hvatti mig þó til að fara til Sviss enda staða mála á Reykholtinu á sínum tíma ekki uppá það besta getum við sagt. En ætli ég kaupi mér ekki bara kort í líkamsræktina sem er hérna í næsta nágrenni og geri gott úr þessu, ég hef þó allavega góða vinnu þegar ég sný á klakann.
Ég þakka lesturinn, ef að þú nenntir að lesa þetta allt - Dóri
7 comments:
Skrítið að Imba hafi bent ykkur á að fara rétt á eftri að hún sagði ykkur söguna! Eru þið viss um að hún sé vinur ykkar?
Ég elska þig samt þó svo þú verður ekki frægur kokkur eða uppvaskari í Svissinu.
Þið eigið eftir að meika það þarna úti. Vonandi eigið þið eftir að skemmta ykkur konungshjónalega.
Ef allt fer til fjandans Dóri geturðu sýnt listir þína úti á götu fyrir smáaura, t.d. við það að skera appelsínur í báta í loftinu á meðan þú hjólar á einhjóli umvafinn gufusoðinni eiturslöngu... Eða eitthvað bara...
Held alla vega að það sé ákaflega gefandi lífsreynsla.
Tjútjú!!! ;)
hver veit, kannski bráðvantar kokk í ræktina!?! ...ætli það sé líka leyfðar reykingar þar????
Reykholt hvað er nú það, heppin ég að þurfa ekki að fara aftur þangað fyrst þið eruð ekki þar ;) Var látin sofa í skáp, maturinn ekki eins og hann átti að vera, Breezerinn búinn og fyrir utan það var stjórinn alveg jafn lítið glaðlegur og síðast þegar við komum :( ÁFRAM ÞIÐ!!! Gangi ykkur vel í landi reykinganna. Knús Anna Bj.
Reykholt er ekki það sama án ykkar...allt að verða vitlaust..oooh hvað við skulum opna flott hótel á flottum stað með flottu fólki og góðum mat þegar þið komið heim aftur :) Magga
Hæhæ nenni þið að blogga :)
Vonandi eru þið hafa það ofsalega gott :)
kv. Guðný
Post a Comment