Sunday, June 10, 2007

Gústi og Biggi í Neuchatel - Aftur á vit ævintýranna - Partur 3

Jæja krakkar mínir, þá heldur frásögnin áfram þar sem frá var haldið en fyrst þetta. Nú eru bara 13 dagar í að ég, dóri haldi heim á leið. Já tíminn flýgur þegar þú ert í fríi og í næstum hverri viku tekuru þér frí frá fríinu og skellir þér eitthvað. En lífið er ekki bara frí frá fríinu og þarf maður víst að fara að vinna og valdi ég að vinna á litlu laxveiðihóteli nálægt Hvolvsvelli , 35-40manns í hádegi og á kvöldi. Svona skemmtilega nálægt bænum og svo er hægt að bruna heim ef svo ber undir. Bergþóra klárar síðann skólaönnina og kemur svo heim um verslunarmannahelgina er marka má seinustu fregnir. En núna af allt öðru, og held ég áfram sögn minni af frægðarför Bigga og Gústa til Svisssss.

Á barnum yfir bjórnum þá ræddum við um væntanlega ferð okkar á Rock Am Ring festivalið sem haldið er í Nürburg í Þýskalandi, nánar tiltekið á Formula 1 brautinni þar. Ég hafði pantað það sem ég hélt að væri hótelherbergi með aukarúmi í bæ rétt hjá Nürburgring og svo ætluðum við að taka lest morguninn eftir : Neuchatel-Basel Basel-Mainz. Og bílaleigubíl frá Mainz-Nürburg. Eftir þessar djúpu samræður og grátandi trúna héldum við heim í koju og sváfum rótt þangað til að klukkan klingdi. Klárað var að pakka og allir settu á sig andlitið og drulluðu sér af stað niður á strætóstopp. Strætó upp á lestarstöð keyptir miðar, sammari og íste á línuna nema Gústi... einhverneginn fann hann alltaf nýja tegund af Powerade í töskunni sinni, misgóðar eins og þær voru margar.

Lestarförin til Mainz gekk vel. Við leituðum strax af bílaleigunni sem samkvæmt internetinu átti bara að vera á lestarstöðinni, en neinei hún var bara ekkert þar og enginn vissi hvar hún var en okkur var þó margoft bent á allt aðra bílaleigu. Allavega eftir að hafa rölt útum alla lestarstöð Mainz og nágrenni með farangurinn fórum við inná internetkaffi. Fengum að fara á internetið þar en konan sagði, passaðu þig efst á stiganum, það ældi einhver þar... jájá takk fyrir það. Þau voru ekkert á því að þrífa neitt upp þessir 4 starfsmenn þarna og ælan var á sínum stað þegar við fórum, geðslegt.

Fundum taxa og báðum hann um að skutla okkur á heimilisfangið á netinu, og viti menn það heimilisfang innihélt enga Hertz bílaleigu, frábært. Hann rúntaði með okkur aðeins um og spurði kollega sína þar til að einn sagði honum frá Hertz bílaleigu 4km frá, keyrðum þangað og viti menn þar stóð drossían, keyrðum af stað eftir að hafa eytt 3klst í ekki neitt, gaman gaman.

Fórum af stað til Nürburg, Gústi á kortinu, Bigg on the wheel, Dóri sofandi afturí. Fengum okkur Burger King á leiðinni, eina sem við fundum. Komum svo til Adenau þar sem ég átti pantað hótel, skoðaði staðfestinguna, en þá var hótelið ekkert í Adenau heldur í Pomster, frábært enn eitt vesenið. Jæja við redduðum því, ég tók wheelið, enda driverinn orðinn þreyttur, Gústi on the map. Tókum svaka sveitavegi til Pomster og loksins þegar við fundum eigandann að hótelinu gátum við fengið lyklana. Hún talaði þýsku og áttum við gott samtal. Svo þegar við komum inn trúðum við þessu varla. Þetta var ekkert hótelherbergi heldur 3ja hæða hús með alles. Herbergi hefði alveg nægt, vorum ekki svo mikið inná herbergi en þetta var bónus og kostaði ekki rass 70 evrur á mann fyrir 3 nætur sem er svona 5600kr íslenskar.

Hérna er húsið góða og kraftlausi Opelinn sem við ökuðum á.


Skelltum okkur strax aftur út og keyrðum uppá svæði. Lætin sem 86.000 manns gáfu frá sér létu á sér kræla á leiðinni að svæðinu. Fórum að aðalsviðinu og sáum Muse spila... þeir voru rosafínir og hljómgæðin góð og þeir líka góðir. Eftir það fórum við á Arctic Monkeys og þeir voru ágætir, betra stúdíoband en vesen með hljóðkerfið á sviðinu þeirra settu kannski strik í reikninginn. Eftir þetta fengum við okkur smá í svanginn og héldum síðan heim á leið og steinrotuðumst.

Öryggisgæslan sem káfaði á okkur, einn gaurinn káfaði fullengi á Bigga

Biggi og Gústi á Muse, doðranturinn fékk að fjúka af Birgi daginn eftir.

Mynd af Muse in action, þeir voru afar góðir.


Ætla bara að segja þetta gott í bili og koma með restina næst.

Thursday, June 7, 2007

Bigg and Gúst go large in Neuchatel.

Bigg og Gúst í heimsókn - Partur 2

Dagur 4

Þá verður haldið áfram þar sem frá var horfið, ákkurat núna skjálfa hjá manni rúðurnar útaf þrumuveðri sem er úti. Bergþóra er eitthvað í skólanum eins og vitleysingur þannig ég keypti mér strútakjöt í dag og henti því í teriyaki, það er ekki hægt að koma því ofaní hana jafnvel þó maður bindi hana niður... nei ég segi svona. Já en allavega þá er komið að degi 4 hann fór fram í sweet sweet Neuchâtel. Ákveðið var að nota daginn í smá hvíld og að versla en það kom skemmtilega á óvart hversu mikið varð úr honum. Vöknuðum klukkan 10 og dressuðum okkur upp og settumst í Fiatinn og keyrðum niður í verslunarmiðstöð sem er líka knattspyrnuvöllur, líkamsrækt, innanhússvellir, bílastæðahús og slökkviliðsstöð.


Myndarlegasta vallarstæði og þess má geta að Neuchatel Xamax FC vann deildina sína og fagnaði ákaft daginn sem að strákarnir komu. Mikið var verslað um þennan morgun og flugu myndavélar, föt og hinn ýmsi varningur úr hillum verlslana. Eftir það hittum við síðan Bergþóru í lunchara og varð Pizza fyrir valinu. Eftir það skelltum við okkur í verslunarferð um bæinn aðeins og þá tók að lifna yfir veðurguðunum. Við ákváðum á þeim tímapunkti að leigja okkur bát og sigla honum vel og mikið, keyptum okkur nesti og héldum út á öldurnar.

Skál fyrir því


Kapteinninn lét ekki segja sér til hvað átti að gera og sagðist þarna sjá til lands, ekki er enn vitað hvað hann átti við með því.


Eftir vel heppnaða bátsferð lá leið okkar í sundlaug staðarins þar sem við slökuðum aðeins á en þetta er leiðinlegasta sundlaug sem við höfum komið í. Skemmtum okkur samt ágætlega en svissararnir eru ekkert að hita vatnið í laugunum og hafa það bara í góðri bergárstemmningu.

Eftir þetta röltuðum við heim og ákváðum að skella okkur í körfu og fótbolta og sýndu menn mikinn metnað og ógurleg tilþrif, eftir heilsuna var þá upplagt að fara að sækja eins og 4 pizzur. Gústa pizza datt einhverneginn í gólfið, góður gústi. En það var nóg handa öllum. Eftir þetta var spjallað, drukknir 1-2 öl og svo farið í háttinn enda stórplön næsta dag já, já, já.


Dagur 5

Þá er komið að degi fimm, vöknuðum afar snemma, 6 að mig minnir... en kannski var það 7. Fórum öll saman í bílinn góða, ég undir stýrið og gústinn á kortinu. Skelltum okkur til Europa-Park í bænum Rust sem er hjá Freiburg og þar. . Keyrslan gekk vel og um 11 vorum við komin í garðinn. Þar var baukað ansi mikið af hinu og þessu og endaði þetta sem hinn besti dagur. Ætla að láta myndirnar tala sínu máli enda óþarfi að babla um þetta endalaust. Á leiðinni heim fengum við okkur grískt að borða, mjög gott. Komum frekar þreytt heim en Begga fór að læra og rak okkur á barinn, við fórum á barinn og fengum okkur 2-3 öl og spjölluðum um Rock-am-Ring helgina sem var framundan.


Bloggerin vill ekki leyfa mér að setja inn fleiri myndir í bili í bili, og ég nenni ekki að setja inn fleiri en þessar, þangað til næst - au revoir madames et monseuirs.

Tuesday, June 5, 2007

Bigg og Gúst í heimsókn - Partur 1

Dagur 1
Það er ógerlegt að troða öllu sem að var baukað þegar að Biggi og Gústi komu í heimsókn í eina færslu þannig að ég ætla að skipta þessu eitthvað niður og setja fleiri myndir í staðinn. Reyni að lofa einni á dag. Here we go.

Á sunnudaginn 27. maí komu Biggi og Gústi til okkar hingað til Sviss, ég og Begg lögðum í svaðilför til Basel til að sækja kappana. Við tókum vel á móti þeim og drifum okkur í lest til Neuchâtel, ekki þó lest eins og Finnur myndi vilja fara í, lestarstjórinn (Finnur) verður að bíða betri tíma eftir því.

Þegar komið var heim komu strákarnir sér fyrir í svítunni hérna í íbúðinni og sturtuðu sig á meðan að ég útbjó einn af vinsælum réttum heimilisins : Truten-Nüdeln sem er Kalkúnabringunúðlur. Drukkinn var kaldur bjór með.
Þessi bjór var sá fyrsti en sannarlega ekki sá síðasti það kvöldið. Allir gerðu sig fín og greiddu í miðju (orðið píka er ekki fyrir minn smekk) Það var semsagt borðað og spjallað saman og einn af öðrum runnu bjórarnir niður. Svo var farið niður i bæ þar sem við hittum vinkonur hennar Bergþóru á einhverjum bar niður í bæ. Við strákarnir höfðum um margt að tala og efast ég um að yrt hafi verið á þær eftir að þeir sögðu hæ og kynntu sig. Drukkum öl og vodka í redbull og töltum á næsta bar. Á þeim bara voru pantaðir svona Mixers sem að eru í plasthristara og gefin skotglös með, seinast þegar að undirritaður drakk það var morgundagurinn ekki til að hrópa húrra fyrir.. misstum okkur vel í þessu en Gústi var rólegri. Fórum á pizzastað þar sem borðuð var pizza og stolið soyja sósu, takk Gústi. Fórum heim og Gústi kláraði Truten-Nüdelnið. Get staðfest það að eftir þetta kvöld var eiginlega ekki drukkið meira en einstaka bjór 2-3 í mesta lagi.

Dagur 2

Dagurinn eftir fór í þynnku/rólegheit enda allt lokað á þessum frídegi. Borðuðum á McDonald´s uppá lestarstöð sem var alveg ekki gott. Röltuðum um bæinn í frekar slöku veðri og eyddum tímanum í ekki neitt framað kvöldmat, þá fórum við á Ítalskan stað sem var bara alveg ágætt svei mjur þá. Heim og spjallað, pantaður bílaleigubíll og næstu dagar planaðir og uppí koju og sofið rótt.
Dagur 3

Plönuðum ferð til Interlaken/Svissnesku Alpana kvöldið áður þennan dag. Vöknuðum snemma ferskir og fórum og sóttum bílinn og keytum okkur morgunmat. Fengum "geðveikan" Fiat Idea sem Biggi neitaði fyrst að ferðast í en lagaðist þegar að hann mátti fá ís. Ég settist undir stýrið og Gústinn settist undir kortið og gekk ferðin ljómandi vel, enda fagmenn á ferðinni. Á leiðinni sáum við Manowar bílinn. Bjuggumst við svaka trukker en þá var hann frekar saklaus.









Komum að rótum alpanna og keyrðum uppí fjallabæ þar sem við ætluðum að taka Gondóla uppá fjall en okkur var bent á að keyra niður og fara annað. Á leiðinni upp þá höfðum við talað um hversu gott það væri nú að fá sér wienersnitzel í raspi, sá draumur rættist á leiðinni niður. Myndirnar eru af snitzelstaðnum og útsýninu af honum yfir Interlaken.













Við héldum svo leið okkar áfram niður til Interlaken þar sem við fundum lestarstöðina og héldum með lest uppí fjallið Schilthorn sem er 2970m að hæð. Við tókum semsagt þessa lest, svo gondóla, svo lest, svo 15min gangur gegnum bæ í 1870m hæð, annar gondóli og enn einn gondóli ( já mér finnst gondóli skemmtilegt orð) Þá komum við uppá topp og skoðuðum okkur um og fengum okkur að borða í 3000m hæð í veitingastað sem að snýst. Útsýnið var ekki upp á marga fiska, það var háskýjað eins og Gústi orðaði það. Það var skrítin tilfinning að fara svona hátt og sjá hvernig þeir búa þarna uppi, Svissararnir. Fórum svo niður í Interlaken og sáum þar Hooters veitingastað, þvímiður vou allir saddir, en skelltum okkur í Casino í sárabót. Ég og Gústi gerðumst grófir og lögðum 2500kall(1250kr á mann) undir á svartan í rúllettu spili, en töpuðum, en þetta var mjög gaman samt sem áður. Mikil og góð ferð þrátt fyrir að veðrir hafi ekki verið það besta og útsýnið af fjallstoppnum sjálfum var frekar slappt. Slæ botninn í þetta með nokkrum myndum og næsti hluti kemur þá líklegast á morgun, stay tuned !


Risatafl á kafi í snjó og Er ekki í lagi að borða bara úti?










Biggi notaði hvert tækifæri til að skarta á sólgleraugunum, að þessu sinni í Gondóla og Útsýnið úr gondólanum,meðan hann vaggaði yfir gljúfrinu








Fengum okkur Svissneskan platta, franskar og einn bjór. Ekki okkar íslendinga stíll að borða álegg og mygluost með súrum gúrkum og súrsuðum perlulauk, franskarnar voru hinsvegar ágætar og bjórinn með.

Friday, May 25, 2007

Leitin að strompinum - mynda megapóst

Á föstudaginn fórum við í sundlaugina. Það var 25-28° og voða fínt, ekki of mikið að fólki. Í sundlauginni sá ég strák með 2 nafla. Rétt hjá okkur sátu 4 svona sirka ellefu ára strákar, rosalega svalir ákváðu þeir að draga upp sígarettu og láta hana ganga.. þeir urðu ekki svo svalir lengur og hóstuðu í kór, frekar vandræðalegir. Fórum í búð og keyptum það alra nauðsynlegasta bjór, vatn og nammi.

Á sunnudaginn er von á Gústa og Bigga í heimsókn, auðvitað er spáð rigningu ALLANN tímann sem að þeir eru hér í Sviss hvað annað, en við höldum svo til Póllands og Þýskalands þar sem við ætlum á Rock Am Ring hátíðina til að berja nokkur goð augum. Ef að við förum til Póllands þá er það sjötta landið sem að ég trampa á í þessari ferð(London, Sviss, Milan, Prague, Þýskaland, Pólland). Vona líka til að geta kíkt yfir til Frakklands áður en að ég fer heim á leið.

Á Fimmtudaginn skellti ég mér í göngutúr. Betur þekktann sem bloggmyndagöngutúr. Tók lest í bæ sem hét Auvernier, stóran "bæ" að ég hélt, en þá var það bara svona eins og nesin heima nema stærri og 6 mínótna lestarferð staðreynd, hræódýrt en frekar mikill óþarfi kannski. Anywho... Þá rölti ég um þann bæ sem er umlukinn vínekrum og rölti síðan 7km að næsta bæ sem var heldur stærri , einnig umlukinn vínviði. Sá margt mismerkilegt en uppsprettan af gönguferðinni var sú að þegar við vorum að koma heim frá flugvellinum í Genf eftir ferðina til Prag þá sá ég svona stromphnulla sem að mig langaði til að virða betur fyrir mér. Meira um það með myndunum sem fylgja færslunni.

Strompurinn er þarna til hægri á myndinni.

í Auvernier : Partur af vínekru og "Château" eins og það kallast en þar undir er oftast vínkjallari en flest svona stunda ekki vínframleiðslu lengur heldur selja berin til stærri framleiðanda, líklegt er þó að þeir haldi nokkrum knyppum eftir handa sjálfum sér en myndarlegasta hús samt sem áður.


Skemmtilegur skúlptúr af því sem virðist vera kisa.


Vatnsbrunnur frá 1755 eins og flest húsin í Auvernier. Þangað náði fólk sér í vatn áður en það var leitt í húsin, fróðleiksmoli dagsins börnin góð.

Áfram hélt ég göngu minni og yfirgaf Auvernier með sorg í hjarta en sá á þessari mynd fangaði ég augnablik þar sem sjá má nútímann(lestina) og fortíðina(Gamla húsið) horfast í augu við hvort annað og fella tár.



Áfram hélt gangan í gegnum skóglendi og eftir smástund fann ég mestu ólykt sem að ég hef fundið og bjóst alveg eins við að finna eitthvað dautt á næstu grösum, ástæðan kom þó fljótt í ljós, strompurinn var sorpbrennslustöð og lyktaði einnig sem slík.










Ég rölti úr ólyktinni og inní Boudry frekar stór bær og gamaldags með nokkrum kastölum.


Undir þessum er rosalega stór vínkjallari sem að er lokaður alemnningi þangað til 1. Júní og geri ég mér líklegast ferð um hann, en ég fékk þó leyfi til að rölta eins og ég vildi um vínekruna sjálfa sem að má oftast ekki og rölti yfir í aðalbæ Boudry sem má sjá fyrir aftan kastalann.


Hér má sjá útsýnið af vínekrunni og yfir Boudry og eins og sjá má fer vínekran eiginlega inní bæinn en Svissararnir nýta hvern einasta cm í þetta í sveitunum og er oft fyndið að sjá hversu mikið þeir nýta landið. Fyrir ofan staurinn á miðri myndinni má sjá turninn á kastalanum þar sem ég sast og át nestið mitt, einnig er næsta mynd tekin þar.


Þetta er sumsé tekið af hæðinni á móti. Vatnið sem ég sé af svölunum heima hjá mér sést þarna fyrir miðri mynd. Konan sem situr á bekknum heitir Jaquilene, hún kemur hingað á hverjum degi til að minnast stundarinnar og staðsins sem að fyrrverandi maðurinn hennar bað hennar áður en hann var kvaddur í herinn þar sem hann síðan lést í seinni heimstyrjöldinni. Ástina fann hún ekki aftur. En hún hefur þó alltaf bekkinn sem hann bað hennar á.

Takk fyrir að skoða, öll skemmtileg comments vel þegin. Minni líka á Pragfærsluna hér fyrir neðan, hef verið í bloggstöði undanfarið.

Thursday, May 24, 2007

Fullnæging blogglestrarmannsins

Margir hafa eflaust beðið sveittir á refresh takkanum og, eins og lofað var kemur færsla frá helginni í Prag. Fórum á föstudegi, lentum heima aftur á mánudegi.

Vaknað var kl 05:15 á föstudagsmorgni og sett á sig andlitið eins og við strákarnir orðum það. Ekkert markvert gerðist á milli þess að ég vaknaði og lenti í Prag þannig ég ætla ekki að lengja bloggið með setningum eins og "sátum og drukkum íste með sítrónubragði meðan við biðum eftir að fá að tékka okkur inn"

Ferðasaga stráks sem dreginn var (grátandi) í stelpuferð til Prag

1. Kapituli - Föstudagur

Þegar lent var í Prag var byrjað á því að finna taxa til að fara niður í bæ til að finna Hostelið sem ég og Bergþóra gistum á, c.a 17km leið. Svíarnir stigu hinsvegar ekki í vitið frekar en fyrri daginn og pöntuðu þær sér hótel um 20min leið frá miðbænum því það var "svo ódýrt" en ekki eftir allar leigubílaferðirnar og tramferðirnar þeirra. Draslinu hent uppá herbergi og drifið sig útí sólina og fyrsti bjórinn keyptur. Svo var rölt um verslunargöturnar áður en að þær tóku sitt hafurtask og fóru á sitt hostel og tékkuðu sig inn. Hittumst svo seinna um kvöldið og fórum út á kráarrölt og lentum meðal annars á Cayote bar eins og úr einhverri bíómynd þar sem barstelpurnar tóku sporið á barborðinu, skemmtilegt nokk. Mojito á tilboði og þá þarf ekki mikið meira til að gleðja mann.

2. Kapituli - Laugardagur

Daginn eftir var vaknað um 10 og drifið sig í verslunarleiðangur og skoðunarferð um borgina, geypilega falleg borg og nýta tékkarnir sér túristana vel, efast um að verð á mörgu þarna hafi verið svona hátt fyrir 5-10 árum, þar sem að föt og merkjavörur eru ódýrari hér í Sviss sem þykir frekar dýrt land. Anywho mikið keypt og nokkrir orkubjórar drukknir. Horft á FA Cup og þarf ekki að tala meira um það. Hittum stelpurnar kl 7 útaf þeim finnst gott að sofa. Amina vildi fara á einhvern "Fish Restaurant" sem hún hafði séð í gær og þegar að sænsk stelpa vill fara eitthvað - þá er farið þangað og ekkert helvítis múður. Til að gera langa sögu stutta var þetta næstómerkilegasti veitingastaður sem ég hef farið á og átti ekkert skylt við Fisk. Síðan var aftur farið útá lífið á laugardagskvöldið, sáum bardansstelpurnar aftur því sænska stelpan vildi það (minni á endann á línu 8 og byrjunina á 9), fórum á einhvern local pöbb og á Bombay bar sem var sta-út föllur af túristum og sá maður nú hálfa flugvélina frá Sviss þarna inni. Fékk mér svaka bjúgudrjóla ú brauði og Bergþóra fékk sér ost í brauði, very nice. Farið heim í Koju.

3. Kapituli - Sunnudagur

Vorum löt og fórum ekki út fyrr en um hádegisbilið þar sem stlpurnar ætluðu að hitta okkur - komu ekki - no surprises. Gerðumst "Pro Tourists" og fórum í svona open tour bus og fengum heyrnartól þarsem rödd guidaði okkur í gegnum borgina og skoðuðum kastala það var ágætt og um að gera að skoða prag eitthvað. Keyptum fullt af fallega ljótum styttum "saman" sem þýðir að Begga ætlar að hirða þær en ég að borga fyrir þær. Áttum góðan dag saman í Prag og hittum síðan stelpurnar og borðuðum á T.G.I Fridays og ég fitnaði um 1kg en ég hafði sett mér það markmið að fitna um 12 kíló á meðan á Svissdvöl minni stendur. Fórum á djassklúbb sem var geggjað, inní helli og besti bjórinn sem ég hafði fengið í þessari ferð. Fórum á smá rölt og enduðum í hostelkojufylleríi og ég með kúlu á hausnum.....


4. Kapituli - Mánudagur

Vöknuðum snemma, böðuðum okkur, settum á okkur andlitið, pökkuðum niður og þá komu stelpurnar. Báðum reception stelpuna að hringja á taxa sem hún og gerði. Þegar við spurðum hvort að taxinn væri AAA sem er eina sem hægt er að treysta þá tjáði ún okkur það að þetta væri eiginlega ekki Taxi heldur maður sem að myndi skuta túristum. Það var ennþá hálftími í leigubílinn þannig að við skelltum okkur í Tesco sem er matvörubúð. Bjórinn er á 30kr og Twix/Mars á 25kr minnir mig og kjöt, brauð og annað er 10x ódýrara en á Íslandi. Þegar við komum beið okkar þessi fagri VW Passat og við ætluðum að fara í hann en þá var þetta ekki okkar bíll, jæja. 10 min seinna kemur drossían Volvo '72 með tilheyrandi ryðblettum og slíku. Gaurinn sjálfur í samræmi við bílinn og þegar hann var kominn á smá ferð þurfti að halda hanskahólfinu lokuðu þannið hann svona teygði sig yfir í framsætið til mín, hélt hanskahólfinu lokuðu og keyrði bílinn. Á leiðinni reyndi hann að þrusa útúr sér einhverri ensku sem allavega ég skildi varla orð í, náði þó "very pretty" "dancing house" "nice bridge view" og megið þið reyna að fylla í eyðurnar. Góð ferð í nær alla staði og alltaf gaman að sjá nýja borg, læt nokkrar myndir fylgja.

Blúskjallarinn, magnaður staður þar sem þeir skiptust á að taka tryllinginn

Amina og Johanna að hjægja að enn einum brandaranum mínum
Mynd af Prag séð af hæð sem við fórum á í skoðunarbusinum

Á Cayote barnum þar sem var tilboð á Mojito

Ég, undirhakan og einhver brú.

Fyrsti Prag bjórinn rann ljúft niður




Wednesday, May 23, 2007

Posted by Picasa

Thursday, May 17, 2007

Göngutúr

Skellti mér í stuttann göngutúr í bænum áðan, hér kemur sagan af því:
Ég byrjaði á að labba niður öll 100 þrepin frá íbúðinni og kveið strax fyrir að þurfa að labba upp þær aftur, ekki að maður hafi ekki gott að því það er bara hundleiðinlegt. Um leið og ég kem að Strætóstoppustöðinni þá kemur strætóinn, ekki oft sem að það gerist. Þegar ég kom niður í bæ og eftir örstutta göngu blasti við mér skemmtileg sjón : 2 lesbíur voru að labba með "lögregluhundurinn rex" hund og héldust þær í hendur sem er kannski ekki frásögu færandi, NEMA hvað að sú sem er með hundinn í beislinu ræður ekkert við hundsgreyið og sveiflast þær í allar áttir sem að hundurinn vill og sleppa aldrei takinu á hvor annari, magnað. Þess má geta að hárið á þeim var litað annars vegar blátt og hinsvegar rautt sem gerði þetta ennþá fyndnara.

Þegar ég hafði gengið um bæinn í sirka 10min þá ákvað ég að taka strætó uppá lestarstöð til að kaupa í matinn því í dag er allt lokað nema á æestarstöðinni útaf public holiday.... Anywho, þear ég er að bíða eftir strætó þá sé ég að 2 stelpur eru eitthvað að rífast og slá svona aðeins í hvor aðra. Það er kannski ekkert óeðlilegt nema að þegar ég tók ípodinn úr eyrunum (á þessu augnabliku löbbuðu 2 dvergar framhjá) sá ég að þær voru heyrnarlausar og eftir að hafa hrint hvor annari í smástund byrjuðu þær að rífast á táknmáli þangað til ein fór að gráta, hún grét alla leiðina uppá lestarstöð en reyndar var einhver fullorðin kona sem að huggaði hana á táknmáli.

Eftir að hafa keypt í matinn og komið mér aftur niður í bæ þá hélt ég að ég sæji nú ekki meira markvert þennan göngutúrinn. En annað kom á daginn þegar að frekar feitur og ófríður maður kom á stoppistöðina með frekar myndarlega konu á sama aldri með sér. Ég sá nú fljótt að þau voru eitthvað ekki sátt og hann angaði skemmtilega af vínlykt. Þegar þau settust í strætóinn þá langaði mig strax til að vita hvort að þau gætu sitið hlið við vlið enda hann í stærri kantinum. Hún var þá svo snjöll og hú settist í sæti við ganginn og setti veskið sitt í gluggasætið og hann settist í gangsætið við hliðina. Eftir eina mínótu þá skipti hún við veskið sitt og þá tók hann veskið upp og ætlaði að setjast við hliðina á konunni sinni en hún sló hann bara utanundir takk kærlega svo að allir í strætónum heyrðu og meirað segja hundurinn í strætónum hætti að leika sér að boltanum sínum. Það má ýmsan lærdóm draga að þessari sögu.

Annars er það í fréttum að eftir sirka 12klst leggjum við af stað til Prag þar sem helginni verður eitt með tveimur skólafélugum hennar Bergþóru, sænskir djöflar, Amina og Johanna. Án efa koma myndir af þeirri reisu hingað inn. Annars er lítið að gerast þessa dagana það er ekki lengur 25°hiti úti alla dagana og í dag er rigningarúði með köflum af allmikilli rigningu, kjúlli í ofninum og ég á eftir að gera núðlur og eitthvað gumms með, þangað til næst !