Thursday, May 17, 2007

Göngutúr

Skellti mér í stuttann göngutúr í bænum áðan, hér kemur sagan af því:
Ég byrjaði á að labba niður öll 100 þrepin frá íbúðinni og kveið strax fyrir að þurfa að labba upp þær aftur, ekki að maður hafi ekki gott að því það er bara hundleiðinlegt. Um leið og ég kem að Strætóstoppustöðinni þá kemur strætóinn, ekki oft sem að það gerist. Þegar ég kom niður í bæ og eftir örstutta göngu blasti við mér skemmtileg sjón : 2 lesbíur voru að labba með "lögregluhundurinn rex" hund og héldust þær í hendur sem er kannski ekki frásögu færandi, NEMA hvað að sú sem er með hundinn í beislinu ræður ekkert við hundsgreyið og sveiflast þær í allar áttir sem að hundurinn vill og sleppa aldrei takinu á hvor annari, magnað. Þess má geta að hárið á þeim var litað annars vegar blátt og hinsvegar rautt sem gerði þetta ennþá fyndnara.

Þegar ég hafði gengið um bæinn í sirka 10min þá ákvað ég að taka strætó uppá lestarstöð til að kaupa í matinn því í dag er allt lokað nema á æestarstöðinni útaf public holiday.... Anywho, þear ég er að bíða eftir strætó þá sé ég að 2 stelpur eru eitthvað að rífast og slá svona aðeins í hvor aðra. Það er kannski ekkert óeðlilegt nema að þegar ég tók ípodinn úr eyrunum (á þessu augnabliku löbbuðu 2 dvergar framhjá) sá ég að þær voru heyrnarlausar og eftir að hafa hrint hvor annari í smástund byrjuðu þær að rífast á táknmáli þangað til ein fór að gráta, hún grét alla leiðina uppá lestarstöð en reyndar var einhver fullorðin kona sem að huggaði hana á táknmáli.

Eftir að hafa keypt í matinn og komið mér aftur niður í bæ þá hélt ég að ég sæji nú ekki meira markvert þennan göngutúrinn. En annað kom á daginn þegar að frekar feitur og ófríður maður kom á stoppistöðina með frekar myndarlega konu á sama aldri með sér. Ég sá nú fljótt að þau voru eitthvað ekki sátt og hann angaði skemmtilega af vínlykt. Þegar þau settust í strætóinn þá langaði mig strax til að vita hvort að þau gætu sitið hlið við vlið enda hann í stærri kantinum. Hún var þá svo snjöll og hú settist í sæti við ganginn og setti veskið sitt í gluggasætið og hann settist í gangsætið við hliðina. Eftir eina mínótu þá skipti hún við veskið sitt og þá tók hann veskið upp og ætlaði að setjast við hliðina á konunni sinni en hún sló hann bara utanundir takk kærlega svo að allir í strætónum heyrðu og meirað segja hundurinn í strætónum hætti að leika sér að boltanum sínum. Það má ýmsan lærdóm draga að þessari sögu.

Annars er það í fréttum að eftir sirka 12klst leggjum við af stað til Prag þar sem helginni verður eitt með tveimur skólafélugum hennar Bergþóru, sænskir djöflar, Amina og Johanna. Án efa koma myndir af þeirri reisu hingað inn. Annars er lítið að gerast þessa dagana það er ekki lengur 25°hiti úti alla dagana og í dag er rigningarúði með köflum af allmikilli rigningu, kjúlli í ofninum og ég á eftir að gera núðlur og eitthvað gumms með, þangað til næst !

2 comments:

Anonymous said...

JaHá...!!

Anonymous said...

Er þetta lygasaga eða skáldsaga... þetta er allavega góð saga